miðvikudagur, febrúar 16, 2005

dagana drifið

jæja nú hefst blogg gamanið. ég var að koma frá dalvík, var þar yfir helgina á skíðamóti svaka gaman og auðvita stóðu mínir krakkar sig vel. var síðan sagt á mánudaginn að ég væri að fara til Króatíu núna 23 feb með 6 krakka úr reykjavík á FIS skíðamót og verð í 5 daga, byrja á því að fljúga til Köben og þaðan til Vínar og fer síðan með rútu til Zagreb í Króatíu og mun gista þar á einhverju glæsi hóteli ! ekki slæmt.

mikið að gera mót nú um helgina og er með gífurlegt samviskubit og er svekkt yfir því að hafa ekki getað verið með á Husky æfingum á sunnudögum síðastliðnar helgar og á ekki eftir að geta verið með næstu helgar, ætla sanmmt að reyna að mæta á sunnudaginn. Það er sýning 4-6 mars, Ugla er of feit og ég efast um að ég getir komið henni í form fyrir sýninguna, vonandi er dómarinn bara hrifinn af einhverju til að klípa í ;) Nótt er í fínu formi en feldurinn frekar reitulegur, þannig að ég býst ekki við meistarastigi á þessarri sýningu :( en hver veit :)
|