laugardagur, febrúar 19, 2005

Frábær dagur

tvö mót hjá krökkunum mínum í dag (13-14ára) stóðu sig frábærlega = tveir reykjavíkurmeistarar í stórsvigi og tvö brons í svigi, og svo auðvita 4 sæti og fullt af góðum tímum í viðbót. hver segir síðan að ungar stelpur geti ekki þjálfað ;)

Nótt og Ugla fóru í pössun í dag til hunda mömmu sinnar og pabba og voru held ég bara alveg ágætlega stilltar, ohh það er svo gaman að koma síðan að sækja þær æsingurinn og gleðin í hámarki.

og læra? hvað er það nú eiginlega ég held ég verði að fara að taka mig á í því að kynnast því hugtaki aðeins betur, enn allavegana þá er það ákveðið að páskarnir fari í það að læra svo ég kolfelli ekki og síðan förum við reyndar í brúðkaup á snæfellsnesi sem verður gaman.
|