sunnudagur, maí 08, 2005

Skylda að syngja bloggið hátt og með innlifun !!
-- annaðhvort :o( eða :o) endir, þið ráðið

Lag: þegar piparkökur bakast (soldið lengri útgáfa)
Texti: lúinn námsmaður

Þegar prófin eru búin
verð ég eflaust mjög svo lúin
en ég glöð verð hér í hjarta
því ég elska sumariiið

ég ætla að slá þá nokkra bolta
og mig svo sannarlegaað gorta
yfir því að vera búin
meeð prófalestuuriiinnn

síðan fer ég burt úr landi
helli í mig fullt af blandi
tjútta og tralla rallaralla
og hef sko engar áhyggjuuur..

en síðan þegar ég kem aftur
verður kominn auka kraftur
til að taka á móti tölum
sem ég vona að sæmi méér

:o( _____________________
ef það ekki verður raunin
býður bara svartur dauðinn
og ég grenja úr mér lungun
sem er ekki nógu gooott

(syngja hægar)
því að sumariiiið er tímiiinn
þaaar sem gleeðin triillir lýðinnn
en ég verð að hanga inni til að læra í minn haus ! :o(

:o) góði endirinn ___________
núna rignir upp í nefið
þetta var nú ekki gefið
er svo svakalega montin
því ég best í heimi eeer !

(syngja hægar)
jáhá sumariiið er tíminn
og ég sjáálf mun tryylla lýðiiinn
vera úti alla daga og njóta þess að vera til ! :o)
|