þriðjudagur, maí 10, 2005

london baby

híhíhí ég er sko búin í prófum og líka búin að taka fyrsta golfhring sumarsins þar sem kom eitt par og nokkrir skollar en síðan bara einhverjar sprengjur en næstu dagar verða vægast sagt skemmtilegir :) kristinn var að skutlast með tíkurnar vestur af því að frábæra fólkið þau ísak og rut ætla að gerast svo djörf að passa þær á meðan við erum úti í london baby, ohh ég á eftir að sakna þeirra svo sjúklega :o/

jamm bara að fara til london baby á morgun með lenu og gunna og síðan til liverpool um helgina á fótboltaleik liverpool-aston villa ! og síðan fer ég beint vestur í ísafjarðarsæluna og verð þar í svona viku og ætla sko að verða 25 ára þar :o) og síðan þegar ég kem aftur suður þá vona ég að ég geti bara farið að vinna = er að fara í atvinnuviðtal á morgun :o) spennó !

vona að þið hafið getað sungið próflokasönginn minn og djöfull er prins polo gott sérstaklega þegar maður drekkur besta drykk í heimi með---sódavatn var ég búin að segja það að ég elska sódavatn ? ;)
|