fimmtudagur, október 06, 2005

rennsli

búin að vera rosalega horuð í viku ! sem sagt með lekandi hor og hrikalega nefmælt, kenni því um að helmingurinn af ofnunum á heimilinu eru bilaðir og ég með mín aumu eyru sef með húfu á hausnum...lennti í má segja hrikalegri lífsreynslu í morgun var nýbúin að snýta mér í svona 700 skiptið í vikunni, tannbustaði mig og fór svo í það að setja á mig andlitskrem, ég kreisti alltaf úr túpunni í lófann loka svo augunum og maka þessu framanímig með mikklum látum.. síðan opna ég augun og SHITT öll út í blóði í framan...þá hafði ég fengið þennann svakalega blóðnasir um leið og ég lokaði augunum og makaði mig því alla í framan með andlitskremi og blóði..var hrædd en hló !! múhahaha ;)

saumaklúbbur hjá ísvélinni í gær og ég var barasta nokkuð myndaleg í eldhúsinu og bauð einungis upp á heimatilbúnar veigar.. gó gó maría !!

skóla góli veit ekki hvernig ég mun fara að þessu en ég mun fara að þessu :o/

..og svo vísindaferð og oktoberfest á morgun víví :)
|