sunnudagur, október 01, 2006

bara svona sunnudags blogg

var nú alveg næstum því hætt við að fara á BC úti æfinguna í gær þegar ég sá að pappírs pési var að byrja í tv, ef það er ekki gæða barnaefni þá veit ég ekki hvað, finnst nútímabarnaefni vera svo þvílíkt rusl og er alveg á því að það ætti að sýna allt þetta gamla góða aftur ;) ég sleppti pappírspésa sammt í þetta skiptið (tek hann bara á video einhvert laugardagskvöldið) fór á BC æfingu..og hvað er svona gaman við það að skríða "hermanna style" í rennandi blautu grasi?? = bara svo svo gaman :) fór síðan á mína fyrstu sundæfingu í morgun :) fór bara í byrjenda prógrammið og synti 1300 metra stefni nú á meira næst og síðan þarf stelpan bara að fara og kaupa sér kork og froskalappir ;P úff ég verð sko algert sund babe ! híhí

hefur alltaf þótt sunnudagar vera alveg horror dagar held sammt það sé að breytast...am I getting older ?? eða kannski er það bara veðrið úti :)

dómur dómur lærdómur
bíður bíður og tíminn líður

THE Ögnin
|