fimmtudagur, október 05, 2006

<>

var að svala hungri mínu á Qulican, fæ mér yfirleitt keisadías með nautahakki, mildri sósu, baunum og salsa. búin að vera að læra í allan dag þannig að það eru gaurarnir í bókinni sem eru búnir að halda mér í stuðinu í dag, þegar ég beið í röðinni komst ég ekki hjá því að heyra í einni kellu sem sagði við vinkonu sína sem sat ein og át burritos hlunkinn sinn "þetta er alveg ógeðslega viðbjóðslegt!" síðan geiflaði hún munninn út um allt andlit með krosslagðar hendur á meðan vinkona hennar sat skömmustulega og jullaðist á gómsæta hlunknum sínum...hvar væri gleðin í lífinu ef ekki væri til svona fólk! ég fór allavegana að brosa og hló svona inní mér..þorði ekki að skella uppúr því það fylgir ekki standard þjóðfélagsins :( ég settist við borðið, þakklát fyrir keisadíasið mitt sódavatnið og skemmtiatriðið sem ég fékk ókeypis ;)

o maria maria she remind me of a west side story
she live in a life just like a move star

...já ég er með þetta lag á ipodinum mínum ;)
|