föstudagur, október 13, 2006

föstudagur

ég er sko alveg svo gömul eða bara sveitó ;) að ég hef leikið mér í þúfum með kindakjálka og leggi og svo eignuðust kindurnar lömb og lömbin voru þá tennurnar sem maður dró úr kjálkunum :) þroskandi, skemmtilegt og nauðsynlegt!
sá frétt á mbl http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1228496 sniðug hugmynd en eftirmyndirnar eru ekki með kjötögnunum á og svona alvöru ;)

bidda bjöss er í heimsókn hjá systur sinni..held reyndar að hún sé meira að hitta gaura borgarinnar en mig ;)

er það oktoberfest í tjaldinu hjá HÍ í kvöld? er þaggi bara hef allavegana farið síðustu ár, við kristrún lentum í þvílíkum hremmingum í fyrra hún var pikk föst í einvherjum drullupitt ég dó úr hlátri við að losa hana og síðan lak sviti úr loftinu niður í glösin..sem er náttúrurlega bara rokk!

hefði aldrei trúað því að ég ætti eftir að kaupa "just right" þar sem ég hataði auglýsinguna..."bara svona fullorðins" en pakkinn er allavegana á borðinu og ég með fullann munninn.

the ÖGNIN
|