mánudagur, október 09, 2006

og þær lögðu af stað í leiðangur

ég og Helga pía lögðum land undir fót á vit ævintýranna á laugardaginn og brunuðum til akureyrar í einum rikk og vorum mættar í íþróttahöllina kl 13.15 að horfa á þrekmeistarakeppnina sem Boot camparar rústuðu náttúrulega ;) væri sko alveg til í að komast í form til að geta verið með næst :)
síðan var tékkað á sundlauginni og auðvita hitað upp í rennibrautunum :) áður en maður fór síðan í kvölddressið + silfurskónna, í partý og svo á greifann og sjallann með 64 boot cömpurum og vá hvað þetta var ógeððslega skemmtileg ferð, vaknað daginn eftir, smúlaði mig í sundi og hristi mig eins og hundur áður en við lögðum í hann í bæinn með frk ólöfu í aftursætinu og í samfloti með gaurunum, pulsa á blönduósi, shake í borgarnesi og ég bara orðin ágæt og ég hetjan fór allavegana á æfingu í morgun!

fröken ugla er á hátindi hárloss og á meðan er ég bara í leðurgallanum með flugnanet gangandi um í hvítum flixum sem þyrlast upp í loftið þegar gengið er um húsið...ekki skemmtilegt en hún er bara svo mikið krúttirass ;) gúddí gúddí :p

The Ögnin
-sem hefur allt of mikið að gera þessa dagana-
|