föstudagur, júlí 13, 2007

...

Farin í sumarfrí út á land, upp á hálendi og yfir sand.
Markmiðið er að labba, borða, sitja, liggja, brosa, spila, syngja, hlæja og baða mig með öðru fólki :)
kveðja Ögn, Ugla og Nótt
|

miðvikudagur, júlí 04, 2007

fróðleiksglápan

Er farin að upplifa það illilega að fólk sé með glápuna á mig sama hvort ég sé í fötum eða í littlum fötum á sundlaugarbökkunum..frekar vandræðalegt...en anyhó hef fengið ýmis komment frá littlum púkum varðandi vömbina mína en fékk einn mjög heljarinnar fróðleiksmola frá einni ca 9 ára í sturtunni í sundlaug mosó í dag þegar hún sagði mér að ég mætti alls ekki vera að hlaupa og skokka mikið því þá yrði barnið lofthrætt!! ómæ ómæ ekki gott en ég held ég sé nú ekki búin að hlaupa það mikið að chilbab eigi eftir að verða lofthrætt...


tími kominn á nýja bumbumynd á netið (27vikur), er einhvað lítið að taka myndir að berri vömbinni en það ætti að vera óhætt núna fyrst að kristrún er búin að sjá naflann með berum augum þannig að naflamynd fer að nálgast ;) hehe...mér líður ekkert illa eða einhvað svoleiðis ég er bara með svona skrítinn svip..hvað er málið með svipinn?? og hvernig í helv á maður að vera á svipinn þegar það er verið að taka mynd af vömbinni á manni...



...lausn.. bara ekki vera með svip heldur bara reyna að sjá á sér tærnar !?!?




kveðja ögn

-sem er í skýjunum yfir því að Chilbab hefur ekki enn kvartað yfir hafragrautnum á morgnanna með ógleði og uppköstum-

|

mánudagur, júlí 02, 2007

summer

það var húsafell um þar síðustu helgi með pabba og famelí...svo ljúft að dingla sér og eta á sig gat, hittum líka bilaða siglufjarðarfólkið og félaga



Kristinn og Nótt við Hvítá



hef ekki hlaupið doldið lengi en skellti mér 5,7 á miðvikudaginn með hlaupahópnum og fór létt með þá á undir 40 mín EN ég fór ekki fimmvörðuhálsinn með 160 boot camp-urum um helgina *grát* en fór í útileguna með þeim í þórsmörk *veivei* sem var snilld og snilldarveður og snilldarfélagsskapur :D ætla klárlega hálsinn næsta sumar hef chilbab bara á bakinu :)

elskulega Uglan mín

kveðja Ögn
-sem er að reyna að skipta úr kókapuffsinu í hafragrautinn-
|